Saturday, April 12, 2008

Working the Night Train



Gleðilegan og hressilegan daginn

Stór tíðindi! Það er allt útlit fyrir að strákurinn sé búinn að útvega sér sína fyrstu atvinnu í hinni stóru borg sem New York er.

Merkilegt nokk þá virðist allt stefna í það að ég muni klippa kynningarmyndband fyrir publicolor góðgerðarstarfsemina sem ég vann fyrir síðastliðin laugardag í Bed-Stuy(sjá síðustu færslu). Það var kameru krew að skjóta þann dag sem ég spjallaði lítilega við og ég lét þá hafa kontakt upplýsingarnar mínar auk þess aðgang að online-ferilskránni minni.

Það fyrirtæki kallast Night Train og svo vildi nú til að klipparnir þeirra voru uppteknir í öðrum verkefnum. Þannig að félaginn kallaði mig til á fund þar sem við spjölluðum lítilega og nú er ég til reynslu hjá þeim í tvo daga að hlaða inn efninu.
vinnuaðstaðan mín

Sýningardagur er 22. þessa mánaðar þannig að ef allt fer eftir áætlun þá mun ég sitja sveittur í svítunni þeirra að klippa efnið niður. Það verður síðan sýnt á fjáröflunar-gala þar sem fólk mun útdeila ávísunum eins og vindurinn í publicolor starfsemina.

Staðsetningin er nokkuð ljúf. West 30th street, milli 7th og 8th Avenue á 15. hæð þar sem ég horfi yfir Madison Square Garden.
Skuggalegar svalir

9 comments:

Stjáni said...

Þetta er náttúrulega bara snilld!! Sýndu þeim hvað þú kannt strákur.

Anonymous said...

Hæ dúlla.
Gaman að heyra þetta, segi eins og Stjáni: Sýndu þeim hvað þú kannt!
Flott útsýni...........
Nafnasamkeppni í gangi fyrir kisu, pabbi þinn vill skíra hana Læðu, frumlegt ha?
Knús

Pétur said...

Glæsilegt Hemmi, þú ert ekki lengi að þessu, mætirðu ekki í Gala kvöldverðinn í smóking eða er klipparanum ekki boðið?
Elísa: ég sting upp á Slæða

Gummi said...

NICE!! Til hamingju! Friggin´ awesome! :)

Kisan: Pjása - málið dautt.

Unknown said...

Frábært drengur!! Þú rúllar þessu upp enda snillingur.. :)

Anonymous said...

Bletzaður Hermann.

Breiðablik-HK í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins. Ekki amalegur leikur það! Fór á Jesus Christ Superstar á laugardaginn, og þrátt fyrir flestir sem ég þekki sem hafa séð þetta stykki hafi sagt að það væri ömurlegt þá hafði ég nú talsvert gaman af því. Krummi var samt alveg veikasti hlekkurinn í sýningunni. Jenni í Brain Police í hlutverki Júdasar var mjög góður.
Horfði svo á Liverpool anala Blakburn í þynnkunni daginn eftir. Jæja hef þetta ekki lengra í bili.
Áfram New York!

Kv.
Fritzzzz Von Liverpúl

Úlfur said...

Þú kannt að taka þetta með trompi. Glæsilegt og gott að heyra.
Nú er bara að láta liðið slefa yfir klippinu.

Tómas Beck said...

Það var lagið maður...

You show them boy!!!

Anonymous said...

In da houze with the job.
Til allra hamingju...til hamingju.
Cut like you've never cut before. Ég vissi að þú myndir negla þér í eitt stykki starf, the sea refuses no river.
Gangi þér vel.

Varðandi kötinn, þar sem ég vil brjóta niður félagsleg norm eins og post-modernisti, þá legg ég til að þið skírið hana Snata.