Hugurinn leitar á heimaslóðir. Lendi ég nokkrum tímum áður en Kiddi og Sara ganga kirkjugólfið á laugardeginum. Gott stuff.
Það stefnir allt í það að ég sé að fara að skrifa þriðju færsluna í röð um að ég sé að koma til landsins. Vík af þeirri braut hið snarasta og vill lauslega snerta á þeirri staðreynd að ég var í afslöppun á Union Square að fá mér að borða og ákvað þá Bylgja Ægisdóttir að tölta framhjá. Það virðist vera að hún sé nýflutt til New York. Ég er ennþá að fríka út yfir þeirri súrri tilviljun að hafa rekist á hana.
Hélt garðveislu á sunnudaginn í tilefni endaloka sjónvarpsseríunar. David Garvoille herbergisfélagi minn tók sig saman og smellti af nokkrum myndum.
Hér er ég voldugur við grillið.
Gamli góði bananinn með súkkulaði, hnetum og ís á grillið vakti feiknamikla lukku. Það ásamt handbolta er að slá í gegn í Brooklyn.Arlavega á heimleið... Pálmi, "take it away"...
3 comments:
Rúllukraginn er bestur.
Ertu búinn að segja könununum hina sígildu sögu um varamanninn og fimleikagryfjuna?
Er ennþá í því að spila mig sem bjargvætt íþróttarinnar.Fimleikagryfjan kemur seinna.
1956 gæinn gæti verið fullorðna útgáfan af litla drengnum sem fékk stól í jólagjöf.
hlakka til að sjá þig.
Viggi
Post a Comment